Bumbustríðið í Matarskógi
05.04.2006 15:04:05 / kristrun

Afmæli!!

Ég á afmæli í dag...daman bara orðin tvítug!!!:D

Sem þýðir að ég ætla að svindla í dag... bara svona svo þig vitið af því:S

Annars er þessi bloggsíða nú ekkert að gera sig hérna....held ég hætti þessu nú bara fljótlega!

Kristrún Afmælisbumbulína8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 13:53:48 / kristrun

loksins!

Jæja ég er loksins komin á rétta braut!! Skilaði 400 grömmunum sem ég bætti á mig í síðustu viku og er mjög sátt við það :D Vonandi halda tölurnar bara áfram að vera mínus tölur núna! þetta kemur allt....

Kristrún bumbulína8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 09:30:11 / anna gudrun

Update

Fóru 300 gr í gær, búin að breyta kílóastikunni minni hérna að ofan og stilla hana á það sem ég ætla að missa allt í allt (semsagt 4,1 í viðbót) :)

BMI talan mín nálgast líka óðum 24 - sem er hæsta gildi í 'heilbrigði' skv. doktor.is ;)

Ekki fleira í bili :)

-Anna Guðrún bumbulína


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 15:05:21 / anna gudrun

1,4 eftir...

Já, það eru 1,4 kg. eftir í hæðina mína -100!! :D Léttist um 800 gr. núna, ég er sátt ;)

Kristín kíkti líka á úlnliðinn minn og sagði að ég væri smábeinótt og mætti alveg vel við því að missa 2-4 kg. í viðbót þegar ég er komin niður í mína tölu :) - Þessi kíló skulu vera farin fyrir 26. maí í síðasta lagi ;)

Hef ekkert fleira að segja, kveð að sinni :)

-Anna Guðrún bumbulína


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 13:29:19 / anna gudrun

Upp

Fór upp um 400 gr í síðustu vigtun... Þar spilaði áfengi og sælgæti inn í :$, en ég held áfram... þetta kemur með tímanum... enda finnst mér skemmtilegra að horfa á líkamann breytast heldur en tölurnar á vigtinni ;)

Í gær var útskriftarveisla heima... þar fékk ég mér hvítvínsglas til heiðurs systur minni. Sjáum til hvernig það kemur út í næstu vigtun :$

Á morgun (mánudag) tek ég mig á :)

-Anna Guðrún bumbulína


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 14:15:06 / anna gudrun

Jájájá... góðan daginn :)

Vigtunarlínurnar okkar duttu út aftur og ég veit ekki hvað og hvað!! En ég er búin að koma því aftur í gagnið ;)

Síðan síðast hafa nokkur kíló fengið að fjúka, nýr tugur kom í ljós í þar síðustu vigtun og núna í gær komst ég loksins yfir 10 kílóa múrinn!! (léttingur síðustu viku var 1,1 kg) :haha: 10,6 kg farin og 1,8 eftir ;)

 Núna er ég búin að ákveða að fara í litun og plokkun og allt það þegar kortinu mínu líður betur ;)

- Anna Guðrún bumbulína

ps. buxurnar sem ég keypti mér fyrir 8 kg reyndust vera í stærra lagi (smellpössuðu þegar ég var að máta og vitlausa ég fattaði að gallabuxur gefa ALLTAF eitthvað eftir... ) svo að núna eru þær... já... eiginlega bara næstum því of stórar :$


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 13:49:52 / kristrun

uss uss uss!

Nú hefur mín sko verið löt að blogga að undanförnu en ég ætla að henda inn smá færslu núna!

Mér gengur ágætlega en er farin að vera aðeins of góð við mig í þessum matarmálum:evil: Sem gerði það að verkum að ég stóð í stað í síðustu viku og býst alveg eins við því að vigtin sýni plústölu þegar ég stíg á hana í kvöld:S En...ég fæ þá bara spark í rassinn og fer af stað á fullu aftur!;) Hef reyndar tekið þá ákvörðun að fá mér smá alkahól um helgina:$ Ég hef tvisvar drukkið áður eftir að ég byrjaði á DDV og í þau skipti hafðu það engin áhrif...vona bara að það verði svoleiðis líka núna!!:S

Gangi ykkur öllum rosalega vel;)

Kristrún bumbulína8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 20:37:53 / anna gudrun

Léttingur var það...

Já... léttingur síðustu viku var 400 grömm jújú svosem alveg ágætt en hefði mátt vera meira... en þetta er bara svona :)

Þá eru bara slétt 4 kíló eftir... virðast ætla að taka sinn tíma að fara en það er víst betra að léttast hægt og örugglega... er það ekki? Það eru líka bara 1,6 kg eftir í 10 kílóin... enn að velta fyrir mér hver verðlaunin eiga að vear... spurning hvort það verði litun og plokkun og augnahárapermament og augnháralitun?? Eða svona gelluskór? bara verst hvað þeir eru allir dýrir... ekki fyrir okkur, fátæku námsmennina... en þetta kemur allt í ljós ;)

-Anna Guðrún bumbulína


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 08:50:19 / kristrun

Nú jæja....:)

Allt er gott sem endar vel!;) Áhyggjurnar um að ég myndi þyngjast þegar ég byrjaði að borða aftur flugu út um gluggann þegar vigtin sagði að LÉTTINGUR vikunnar væri 1,3 kg þessa vikuna!!:D Rosalega ánægð með það:lol:

Ég borða meira og meira með hverjum deginum og líka réttara og réttara þannig að ég er alveg viss um að ná 100% ddv degi í vikunni!;) Kemur allt með kalda vatninu eins og eitthver sagði....

Er að fara í sveitina til mömmu um helgina og nú er sú gamla bara komin í ddv líka þannig að það er ágætt að láta hana taka sig endanlega í gegn!:lol: Maturinn hennar mömmu alltaf góður...og svo núna ddv-vænn líka....ekki verra!;)

Svo er ég líka komin af stað í ræktinni og stefni á að fara allavegana 5 daga í næstu viku...hver veit nema ég fari eitthvað um helgina líka ef ég verð stödd í borginni!;)

Mér líður vel:D

Kristrún bumbulína8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 12:13:55 / kristrun

úps gleymdi...

Hæ hæ:) Ég gleymdi víst að setja inn vigtun síðustu viku....Í þetta skiptið fór ég upp um 200 g! Var nú samt eiginlega planað....mig vantaði eitthvað spark í rassinn8| En ég er allavegana farin að borða meira þessa dagana þó svo að það sé ekki alveg 100%, vantar alltaf eitthvað:cry:

Vigtun aftur í kvöld og ég á alveg eins von á því að þyngjast sökum þess að ég er farin að borða aftur!:S:D Þetta kemur allt...taka bara einn dag í einu! Verð bara að passa mig að detta ekki í svindlgröfina!!:|

Kristrún bumbulína!8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 13:19:20 / anna gudrun

Léttingur og fleira dót

Jæja... léttingur síðustu viku var nú ekki nema 200 grömm en léttingur var það!!! ;) Þetta dugar kannski til að koma mér af stað aftur... :$

Ég fór í verslunarleiðangur í gær og keypti mér buxur í verðlaun fyrir kílóin 8 sem eru komin... svo að núna á ég alveg 2 1/2 buxur (einar eru allt of stórar og eiginlega að detta í sundur af notkun!!) buxurnar sem ég keypti kostuðu reyndar 8000 kall svo að það er 1000 á kíló ;) Svo ætla ég að gera eitthvað þegar þau verða 10... bara spurning hvað?? Ég er alveg ótrúlega dauð í kollinum hvað varðar hugmyndir!!

En allavega þá er ég búin að reka 8 kíló í burtu og á 4,4 eftir

Meira síðar :)

-Anna Guðrún bumbulína


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 14:26:07 / kristrun

ja hérna!

Mér gengur illa að byrja borða aftur!! Hef ekki lyst á matnum sem ég MÁ borða en tími samt ekki að svindla þannig að ég sleppi því að borða alltof oft!!!:cry: Veit ekki hvað ég á að gera...

Er samt búin að svindla nokkrum sinnum í þeirri von að næst þegar ég stígi á vigtina þá sé ég búin að þyngjast og fái sjokk....er að vonast til þess að ég fái drifkraftinn aftur með því! En allt kemur fyrir ekki....ég held bara áfram að léttast! Missti 1,2 kg þessa vikuna;) Ég er auðvitað mjög ánægð með það en mig langar að missa þessi kíló á réttan hátt þannig að ég er soldið vonsvikin líka:(

Mér hefur gengið aðeins betur síðustu daga og ég vona að það haldi áfram í þá átt...

Annars er það að frétta að ég er komin af stað í ræktinni aftur!;) Hélt ég ætlaði aldrei að komast í gang eftir jólin:S En það tókst! Og hitt mun takast líka....ég er viss um það:D

Kristrún bumbulína8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 20:39:59 / anna gudrun

Upp og niður, út og suður!!!

Gleymdi að segja ykkur frá 'léttingi' jólanna... þá fór ég upp um 100 grömm... ekki meira þó!! ;) Þessa vikuna bætti ég það heldur betur upp og kvaddi 1,9 kíló!!! Það þýðir að það eru minna en 5 kíló eftir í takmarkið mitt hérna að ofan, meira en 7 kíló farin (mikið meira) OG BMI 25,7 ( takmarkið fyrir jól var 6,9 kg eða niður í heilbrigði í BMI (26)... ég missti sjötta kílóið í síðustu viktuninni fyrir jól 15. des. og hef örugglega misst eitthvað á milli 15. og 24. des. en ég pæli ekki í því núna... ég náði takmarkinu semsagt næstum því...)!!! (vá... langur svigi :P )

Þegar ég kom heim prófaði ég að fara í nýju gallabuxurnar sem ég fékk í jólagjöf (voru eiginlega  1/2 - 1 númeri of litlar ÞÁ) og það munar nú ekki miklu að þær passi bara... svo að núna get ég farið að vera í þeim!!

Er ekki enn búin að 'verðlaunað mig fyrir 5 kílóin... átti ekki pening þegar ég komst yfir þann múr... (auk þess að ég vissi ekki hvað ég átti að kaupa) en kannski verða bara stór verðlaun fyrir 10 kíló?? Einhverjar hugmyndir?? Kannski get ég keypt mér fleiri buxur til að þurfa ekki að búa í einum buxum og 'flytja' svo af og til :p Kemur allt saman í ljós!!

Ekki fleira í bili... ætla að fara að uppfæra fallegu BMI töluna mína ;)

- Anna Guðrún bumbulína


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 20:33:34 / kristrun

jahérna!!!!!

Haldið þið ekki bara að ég hafi LÉST um jólin!!!:D:D:D:D Um alveg 1,5kg!!!;) Þessu var ég nú ekki búin að reikna með...var búin að svindla alveg nokkuð mikið um jólin sko8|

En þá er bara að passa sig að festast ekki í þessari heppni minni og halda ótrauð áfram8) Styttist í lokatakmarkið:D

Komst yfir 10 kílógramma múrinn og er búin að missa 11,4 kg í heildina:D fékk lyklakippu og alles!

Kristrún bumbulína8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 13:07:30 / anna gudrun

Gleðilegt ár!!

Jæja, þá er hið mikla ár 2006 gengið í garð ;) Jólin mín voru bara mjög fín - reyndar fór svolítið mikið af konfekti og jólamat (þó meira af konfekti held ég...) inn fyrir minn munn, svo að þessi viktun á eftir verður skrautleg!! :$ Ég er auk þess eiginlega ekkert búin að vikta síðan einhvern tímann fyrir jól og lítið sem ekkert grænmeti búin að borða!! :$

En það verður bara að taka afleiðingunum og vera duglegur þangað til í vor, þar sem ég ætla að vera orðin fín í útskriftinni minni í maí!

Það vantaði bara 900 gr. upp á að ég náði 'fyrir jólin' takmarkinu mínu (og jólakjóllinn minn var næstum því orðinn of stór!! :haha: ) svo að núna er ég hálfnuð svona næstum því og ætla að rusla þessu af í eitt skipti fyrir öll!

En við byrjum á viktun í kvöld, skrifa síðar ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4